
Frakkar þurfa að finna 7 milljarða evra til þess að ná markmiðum um fjárlagahalla á þessu ári og raunar kann sú upphæð að vera nær 10 milljörðum að sögn Pierre Moscovici, hins nýja fjármálaráðherra. Þá er miðað við að fjárlagahallinn verði 4,5% af vergri landsframleiðslu á þessu ári. En meira þarf til ef markmið um 3% halla eiga að nást á árinu 2013.
Frakkar ætla að ná 7 milljörðum evra á þessu ári með skattahækkunum. Hins vegar segir Deutsche-Welle, að til þess að ná markmiðum næsta árs verði þeir að skera niður opinber útgjöld, sem er eitur í beinum þeirra. Opinber útgjöld í Frakklandi nema 56% af vergri landsframleiðslu, sem er hærra hlutfall en í nokkru öðru aðildarríki ESB.
Deutsche-Welle segir eftir því tekið, að þótt ný frönsk ríkisstjórn lofi að standa við sitt hamri hún á því að leggja verði aukið fé í fjárfestingar og aukinn hagvöxt og þannig muni leysast úr efnahagsvanda evruríkjanna.
Fyrir skömmu sagði Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, að Frakkland kunni að þurfa á neyðaraðstoð að halda.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Þau Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðarráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.
Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni
Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknarflokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.