Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Spiegel: Merkel samþykkti bara eina undantekningu á fundinum


Styrmir Gunnarsson
30. júní 2012 klukkan 09:35
Mario Draghi, Angela Merkel og Mario Monti.

Í kjölfar leiðtogafundar ESB og í framhaldi af honum evruríkjanna sérstaklega hefur Angela Merkel undirstrikað að hún hafi á fundinum einungis samþykkt eina undantekningu frá starfsreglum ESM, hins varanlega neyðarsjóðs Evrópusambandsins, sem tekur til starfa nú í júlí. Hún hafi samþykkt að neyðarlánið til spænskra banka nyti ekki sérstöðu umfram aðra lánardrottna bankanna. Hún hefur jafnframt vakið athygli á því, að ESM mundi einungis veita öðrum bönkum aðstoð eftir að sameiginlegt bankaeftirlit evruríkjanna hefði verið sett upp og hún hefur líka sagt að í þeim undirbúningi gæti Þýzkaland hvenær sem væri beitt neitunarvaldi.

Þetta kemur fram í Spiegel, sem segir hins vegar að harkan í öðrum aðildarríkjum hafi komið Merkel í opna skjöldu á fundinum og að hún hafi átt erfitt með að hafa stjórn á þeim fjölmiðlaspuna, sem fylgt hafi í kjölfarið.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Þýzkaland: Commerzbank fækkar starfsmönnum um 5000

Þýzki Commerz-bankinn, sem er að hluta til í eigu þýzka ríkisins mun fækka starfsmönnum um 5000 að því er fram kemur í Handelsblatt í dag. Commerzbank er næst stærsti banki Þýzkalands. Samkomulag hefur náðst um málið við starfsmannaráð bankans. Markmiðið er að bæta rekstrargrundvöll bankans.

Er lánabólan í Kína komin úr böndum?

Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph í London vekur athygli á því í blaði sínu nú um helgina að skuggabankakerfi Kína sé komið úr böndum og þar með lánabólan í landinu. Það verði stöðugt erfiðara fyrir lántakendur að framlengja skammtímaskuldir sínar. Þetta er niðurstaða bandaríska lánshæfismats fyrirtækisins Fitch.

Tillaga um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka á Alþingi

Fimm þingmenn stjórnar­andstöðunnar, þau Árni Þór Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Bjarkey Gunnars­dóttir, Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir og Ögmundur Jónasson hafa flutt á Alþingi þingsályktunartillögu um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka.

Reuters: Er eiginfjárstaða Deutsche Bank „hræðileg“?

Einn af æðstu ráðamönnum í banka­eftirlitskerfi Bandaríkjanna heldur því fram, að eiginfjárstaða Deutsche Bank sé „hræðileg“ og sú versta á lista yfir alþjóðlega banka.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS