
Lánaþurrð er á evrusvæðinu að sögn Deutche-Welle. Útlán hafa minnkað þrátt fyrir þá trilljón evra, sem Seðlabanki Erópu veitti til bankanna í ódýrum lánum í desember og febrúar. Samdráttur varð í maí í lánveitingum til einkafyrirtækja um 0,1% skv. nýjum tölum frá ESB. Í apríl námu lánveitingar til heimila 7 milljörðum evra en í maí 2 milljörðum evra.
Í umfjöllun DW kemur fram að í stað þess að lána peningana út safni bankarnir í sjóði eða geymi þá yfir nótt í Seðlabanka Evrópu.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni
Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknarflokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.
Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB
Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópusambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.