Miðvikudagurinn 19. júní 2013

FT: Markaðir í óvissu-krafan á Spán komin í 6,82%


Styrmir Gunnarsson
6. júlí 2012 klukkan 10:06

Financial Times segir í morgun, að vaxtalækkanir og aðrar tilslakanir seðlabanka hafi haft þau áhrif ein að ýta undir áhyggjur markaða auk þess sem þeir séu í óvissu um nýjar tölur, sem senn verði birtar um stöðuna í Bandaríkjunum. Hlutabréf lækkuðu í verði í Asíu í nótt og Evrópu í morgun. Þá eru vísbendingar um fjárflótta í bandarísk ríkisskuldabréf.

FT segir að vaxtalækkun Seðlabanka Evrópu og aðgerðir Englandsbanka hafi verið aðgerðir, sem búizt var við en vaxtalækkun Seðlabanka Kína hafi komið á óvart. Sumir sérfræðingar segja við FT, að seðlabankarnir hafi gripið til aðgerða of seint. Fjárfestar hafi tekið eftir heldur neikvæðum ummælum Mario Draghi. Bandarísku tölurnar verða birtar síðar í dag.

Þá bendir FT á að ávöxtunarkrafan á Spán og Ítalíu sé að hækka á ný. Í morgun var krafan á 10 ára spænsk bréf komin í 6,82%. Peningar eru aftur byrjaðir að streyma í þýzk ríkisskuldabréf.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Bretland: Ítarlegar tillögur um breytta bankalöggjöf liggja fyrir brezka þinginu

Í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag er sagt frá nýrri skýrslu banka­nefndar, sem starfað hefur um skeið í Bretlandi en nú þegar liggur fyrir þinginu frumvarp að löggjöf, sem byggt er á tillögum nefndarinnar fram að þessu. BBC segir að nýjar tillögur nefndarinnar sé hægt að fella inn í það frumvarp.

Þýzkaland: Commerzbank fækkar starfsmönnum um 5000

Þýzki Commerz-bankinn, sem er að hluta til í eigu þýzka ríkisins mun fækka starfsmönnum um 5000 að því er fram kemur í Handelsblatt í dag. Commerzbank er næst stærsti banki Þýzkalands. Samkomulag hefur náðst um málið við starfsmannaráð bankans. Markmiðið er að bæta rekstrargrundvöll bankans.

Er lánabólan í Kína komin úr böndum?

Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph í London vekur athygli á því í blaði sínu nú um helgina að skuggabankakerfi Kína sé komið úr böndum og þar með lánabólan í landinu. Það verði stöðugt erfiðara fyrir lántakendur að framlengja skammtímaskuldir sínar. Þetta er niðurstaða bandaríska lánshæfismats fyrirtækisins Fitch.

Tillaga um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka á Alþingi

Fimm þingmenn stjórnar­andstöðunnar, þau Árni Þór Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Bjarkey Gunnars­dóttir, Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir og Ögmundur Jónasson hafa flutt á Alþingi þingsályktunartillögu um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS