Rupert Murdoch, ástralski blaðakóngurinn, sem er 81 árs að aldri, hefur nú sagt af sér úr stjórnum þeirra fyrirtækja, sem annast útgáfu blaða hans í Bretlandi, The Times, The Sunday Times og The Sun. Skýringarnar, sem eru gefnar eru þessar: Murdoch hefur ákveðið að skipta útgáfufyrirtæki sínu í tvennt. Annars vegar fyrirtækið, sem á Fox-sjónvarpsstöðina, stóran hlut í Sky, kvikmyndagerðarfyrirtæki í Hollywood og önnur fyrirtæki í skemmtanaiðnaði en þessi rekstur stendur að baki um 90% af tekjum fjölmiðlaveldis Murdochs. Hins vegar verður fyrirtæki, sem sér um útgáfu blaða, m.a. í Bretlandi.
Þótt Murdoch hafi orðið illa úti í umræðum í Bretlandi á undanförnum mánuðum og þingmaður sagt að hann væri óhæfur til að eiga fjölmiðil, sem er skilgreining, sem hefur lagalega þýðingu þar í landi, hefur úrsögn Murdochs valdið áhyggjum. Ástæðan er sú, að grunur læðist ekki sízt að starfsmönnum blaðanna, að hann hyggist selja hlut sinn í þeim og hætta afskiptum af blaðaútgáfu í landinu.
Þessu er mótmælt af hálfu talsmanna Murdochs en augljóst af fréttum, að þau mótmæli duga ekki til að hreinsa þessar grunsemdir út.
Nú mætti ætla í ljósi umræðna síðustu mánaða að brottför Murdochs úr brezkum blaðaheimi yrði fagnað. Svo er ekki einfaldlega vegna þess, að ekkert liggur fyrir um að einhver annar sé tilbúinn til að greiða tapið af rekstri sumra þessara blaða.
En auðvitað er huganlegt að rússneskir ólígarkar komi til sögunnar. Þeir eru byrjaðir að kaupa upp blöð í Bretlandi.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Bretland: Ítarlegar tillögur um breytta bankalöggjöf liggja fyrir brezka þinginu
Í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag er sagt frá nýrri skýrslu bankanefndar, sem starfað hefur um skeið í Bretlandi en nú þegar liggur fyrir þinginu frumvarp að löggjöf, sem byggt er á tillögum nefndarinnar fram að þessu. BBC segir að nýjar tillögur nefndarinnar sé hægt að fella inn í það frumvarp.
Þýzkaland: Commerzbank fækkar starfsmönnum um 5000
Þýzki Commerz-bankinn, sem er að hluta til í eigu þýzka ríkisins mun fækka starfsmönnum um 5000 að því er fram kemur í Handelsblatt í dag. Commerzbank er næst stærsti banki Þýzkalands. Samkomulag hefur náðst um málið við starfsmannaráð bankans. Markmiðið er að bæta rekstrargrundvöll bankans.
Er lánabólan í Kína komin úr böndum?
Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph í London vekur athygli á því í blaði sínu nú um helgina að skuggabankakerfi Kína sé komið úr böndum og þar með lánabólan í landinu. Það verði stöðugt erfiðara fyrir lántakendur að framlengja skammtímaskuldir sínar. Þetta er niðurstaða bandaríska lánshæfismats fyrirtækisins Fitch.
Tillaga um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka á Alþingi
Fimm þingmenn stjórnarandstöðunnar, þau Árni Þór Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Bjarkey Gunnarsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Ögmundur Jónasson hafa flutt á Alþingi þingsályktunartillögu um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka.