Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Hvað eiga Íslendingar af 21 trilljón dollara í skattaskjólum?


Styrmir Gunnarsson
23. júlí 2012 klukkan 10:28

Frétt brezka sunnudagsblaðsins Observer í gær um að 21 trilljón dollara væri geymd í skattaskjólum víðs vegar um heim hefur að vonum vakið mikla athygli enda ljóst að eðlilegar skattgreiðslur af þessari upphæð kæmu sér vel fyrir margar þjóðir. Nú er um það rætt í Bretlandi að hefja birtingu á nöfnum þeirra, sem skjóta sér með þessum hætti undan eðlilegum skattgreiðslum. Þar hefur verið nefnt dæmi um einstakling, sem hefur komizt upp með að greiða 1% í skatt af miklum tekjum.

Fréttin vekur hins vegar upp þá spurningu hér á Íslandi hvernig skattayfirvöldum gangi að afla upplýsinga um eignir Íslendinga í skattaskjólum. Nú er auðvitað vel hugsanlegt að þar séu geymdir peningar, sem eiga uppruna sinn hér og skattar hafi verið greiddir af en það er áleitin spurning, hversu líklegt er að Íslendingar, sem kunna að hafa komizt yfir mikla fjármuni, þegar bólan var sem stærst hafi staðizt þá freistingu, sem annarra þjóða fólk hefur ekki staðizt.

Eftir því sem lengra líður frá Hruni aukast líkur á því að reynt verði að koma þessum peningum til Íslands og nýta þá með ýmsum hætti til að kaupa fyrirtæki eða koma nýjum af stað.

Um það er ekkert nema gott að segja svo fremi sem ljóst sé að fjármagnið hafi orðið til með eðlilegum hætti og af því greiddir skattar svo sem vera ber.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Bretland: Ítarlegar tillögur um breytta bankalöggjöf liggja fyrir brezka þinginu

Í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag er sagt frá nýrri skýrslu banka­nefndar, sem starfað hefur um skeið í Bretlandi en nú þegar liggur fyrir þinginu frumvarp að löggjöf, sem byggt er á tillögum nefndarinnar fram að þessu. BBC segir að nýjar tillögur nefndarinnar sé hægt að fella inn í það frumvarp.

Þýzkaland: Commerzbank fækkar starfsmönnum um 5000

Þýzki Commerz-bankinn, sem er að hluta til í eigu þýzka ríkisins mun fækka starfsmönnum um 5000 að því er fram kemur í Handelsblatt í dag. Commerzbank er næst stærsti banki Þýzkalands. Samkomulag hefur náðst um málið við starfsmannaráð bankans. Markmiðið er að bæta rekstrargrundvöll bankans.

Er lánabólan í Kína komin úr böndum?

Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph í London vekur athygli á því í blaði sínu nú um helgina að skuggabankakerfi Kína sé komið úr böndum og þar með lánabólan í landinu. Það verði stöðugt erfiðara fyrir lántakendur að framlengja skammtímaskuldir sínar. Þetta er niðurstaða bandaríska lánshæfismats fyrirtækisins Fitch.

Tillaga um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka á Alþingi

Fimm þingmenn stjórnar­andstöðunnar, þau Árni Þór Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Bjarkey Gunnars­dóttir, Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir og Ögmundur Jónasson hafa flutt á Alþingi þingsályktunartillögu um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS