Libor-hneykslið er að vinda upp á sig ef marka má ítarlega umfjöllun um málið í þýzka tímaritinu Der Spiegel, sem segir að bæði rannsóknaraðilar og stjórnmálamenn telji að um „skipulagða svikastarfsemi“ hafi verið að ræða. Sumir aðilar á fjármálamarkaði í Evrópu telja að Libor-málið sé mesta fjármálahneyksli sögunnar.
Spiegel segir að Deutsche Bank hafi hafið eigin rannsókn á málinu haustið 2011. Farið hafi verið í gegnum milljónir tölvupósta. Endurskoðendur hafi verið ráðnir utan bankans og um 50 manns starfað að rannsókninni. Þeir hafi hins vegar ekki komizt á skrið með rannsóknina fyrr en brezk yfirvöld hafi gefið upp nöfn tveggja miðlara, sem vöktu grunsemdir. Þá hafi þáverandi aðalforstjóra Deutsche Bank, Josef Ackermann verið gerð grein fyrir stöðunni og eftir það hafi hann óskað eftir vikulegum skýrslum. Jafnframt hafi tveir starfsmenn verið reknir.
Spiegel segir bankann halda því fram, að aðrir innan bankans hafi ekki verið aðilar að svindlinu og að bankinn sjálfur hafi ekki hagnast á því en tímaritið spyr hvort það geti verið og af hverju hvorki yfirmenn né regluverðir hafi gert sér grein fyrir hvað var að gerast.
Nú stendur yfir rannsókn í London, New York og Brussel. Einn eftirlitsmaður segir að kerfi séu komin í gang, sem hann hafi hingað til einungis þekkt úr kvikmyndum um Mafíuna. Stjórnendur banka liggja undir miklum þrýstingi. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf á síðasta ári málaferli gegn nokkrum bönkum. Meira en 40 bankar hafa komið á framfæri upplýsingum um vafasöm vinnubrögð. Yfir bönkunum vofa háar sektargreiðslur. Lítil einkafyrirtæki á fjármálamarkaði eru að hefja málaferli. Um 20 mál eru í gangi í Bandaríkjunum. Þýzkir lögfræðingar eru að hefjast handa.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Þýzka þingið hefur sett 30 ný lög um strangari reglur vegna starfsemi banka
Þýzka þingið hefur sett um 30 ný lög, sem snerta fjármálamarkaði. Þetta kemur fram á Deutsche-Welle, sem segir að í lögunum felist nýjar og strangari reglur um fjármálamarkaði, sem þýzkur þingmaður (CDU), Hans Michelbach lýsir sem nýrri stjórnarskrá fyrir banka. Umræður og atkvæðagreiðslur stóðu yfir í tvo daga.
Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt
Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.
Þýzkaland: Bild segir upp fólki
Hin hefðbundna dagblaðaútgáfa á pappír á í vök að verjast um allan heim en um leið eflast netútgáfur útgáfufyrirtækjanna, þótt þau séu enn að leita beztu leiða til að afla tekna með slíkri upplýsingamiðlun. Eitt af þeim dagblöðum, sem fram á síðustu ár hefur skilað miklum hagnaði er þýzka blaðið Bild, sem útgáfufélag Axels heitins Springer gefur út.
WSJ:Mesta efnahagslægð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar
Bandaríska viðskiptadagblaðið Wall Street Journal segir að skuldakreppa evruríkjanna hafi þróazt í mestu efnahagslægð í Evrópu frá stríðslokum eða í bráðum 70 ár. Blaðið segir að áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum, bankar, sem geti ekki lánað eða vilji ekki lána og þungar skuldir heimila liggi þungt á þessum ríkjum.