Þriðjudagurinn 18. júní 2013

Vaxandi efasemdir um samskiptamiðla sem auglýsingavettvang


Styrmir Gunnarsson
6. ágúst 2012 klukkan 11:07

Fjölmiðlaheimurinn er búinn að vera í viðskiptalegu uppnámi í mörg ár. Augljóst er að pappírinn er að víkja fyrir lestækjunum. Síðusu tölur frá Amazon sýna meiri sölu á bókum í gegnum Kindle en með hefðbundnum hætti. En auglýsendur eiga erfitt með að fóta sig í þessum nýja heimi og vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Og nú er meira og meira talað um að sjónvarp eins og við þekkjum það fari alveg yfir á netið, sem getur gjörbreytt þeim þætti í fjölmiðlarekstri. Sumt af því sjónvarpsefni, sem framleitt er á ritstjórnarskrifstofum dagblaða og sent út á netútgáfum þeirra er áhugaverðara en það sem hinar hefðbundnu sjónvarpsstöðvar senda frá sér.

Inn í þessa mynd koma svo hinir nýju samskiptamiðlar eins og Facebook og Twitter. Og þótt „umferð“ fólks um þá sé mikil eru meiri og meiri efasemdir hjá auglýsendum um að auglýsingar þeirra þar skili sér í auknum viðskiptum.

Fyrir nokkrum mánuðum vakti athygli, þegar General Motors tilkynnti að fyrirtækið mundi draga úr umsvifum á Facebook. Verð hlutabréfa í þeim samskiptamiðli hefur hrunið frá útboðinu fyrr í sumar.

Nú bendir ný könnun, sem Sunday Telegraph hefur fengið aðgang að til þess að fjármálafyrirtæki hafi dregið mjög úr auglýsingum á samskiptamiðlum. Á síðasta fjórðungi 2011 benti könnun til þess að 22% fyrirtækja í fjármálageiranum auglýsti á samskiptamiðlum. Þessi tala lækkaði í 8,5% á fyrsta fjórðungi þessa árs og í 6% á öðrum fjórðungi.

Ástæðan fyrir þessu er sú, að fyrirtækin eru í mikilli óvissu um, hvort auglýsingar á þessum miðlum skili sér. Jafnframt er athyglisvert að Twitter virðist vera að ná lítilsháttar forskoti á Facebook, sem auglýsingamiðill.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Þýzkaland: Commerzbank fækkar starfsmönnum um 5000

Þýzki Commerz-bankinn, sem er að hluta til í eigu þýzka ríkisins mun fækka starfsmönnum um 5000 að því er fram kemur í Handelsblatt í dag. Commerzbank er næst stærsti banki Þýzkalands. Samkomulag hefur náðst um málið við starfsmannaráð bankans. Markmiðið er að bæta rekstrargrundvöll bankans.

Er lánabólan í Kína komin úr böndum?

Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph í London vekur athygli á því í blaði sínu nú um helgina að skuggabankakerfi Kína sé komið úr böndum og þar með lánabólan í landinu. Það verði stöðugt erfiðara fyrir lántakendur að framlengja skammtímaskuldir sínar. Þetta er niðurstaða bandaríska lánshæfismats fyrirtækisins Fitch.

Tillaga um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka á Alþingi

Fimm þingmenn stjórnar­andstöðunnar, þau Árni Þór Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Bjarkey Gunnars­dóttir, Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir og Ögmundur Jónasson hafa flutt á Alþingi þingsályktunartillögu um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka.

Reuters: Er eiginfjárstaða Deutsche Bank „hræðileg“?

Einn af æðstu ráðamönnum í banka­eftirlitskerfi Bandaríkjanna heldur því fram, að eiginfjárstaða Deutsche Bank sé „hræðileg“ og sú versta á lista yfir alþjóðlega banka.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS