Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Viviane Reding: Haga sér frekar eins og „banksters“ (gangsters) en bankamenn


Styrmir Gunnarsson
16. ágúst 2012 klukkan 10:11
Viviane Reding

Euobserver segir að „banksters“ sem er samsett nýyrði úr ensku orðunum „bankers“ og „gangsters“, geti átt yfir höfði sér refsiákærur eftir að tilkynnt var um þau áform framkvæmdastjórnar ESB að víkka út lagaákvæði um markaðsmisnotkun, þannig að þau nái einnig til vaxtaákvarðana.

Viviane Reding, hinn galvaski fulltrúi í framkvæmdastjórninni, sem fer með dómsmál segir að þeir sem hlut eigi að málum hagi sér frekar eins og „banksters“ en bankamenn. Hún segir að traust almennings til banka hafi hrunið eftir að uppvíst varð um síðustu hneykslin á þeim vettvangi.

Michel Barnier, sá fulltrúi í framkvæmdastjórninni, sem fer með markaðsmál segist muni leggja fram tillögur, sem snúi að vaxtaákvörðunum fyrir lok þessa árs. Barnier segir að Libor-málið sé enn eitt dæmi um hneykslanlegt framferði banka og segir að áformaðar lagabreytingar snúist um að vaxtafikt sé tvímælalaust ólöglegt og geti leitt til refsimála í öllum aðildarríkjunum

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni

Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknar­flokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.

Nýr Englandsbanka­stjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu

Mark Carney, sem er að taka við sem banka­stjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.

Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar

Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evru­svæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.

Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB

Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópu­sambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS