Segir fjármálaafurð svissneska bankans aðeins skiljanlega sérfræðingum í mjög flóknum afleiðuviðskiptum

Richard Desmond, eigandi brezku blaðanna Daily Express og Daily Star hefur stefnt Credit Suisse fyrir að hafa selt honum flókna afleiðuafurð upp á 50 milljónir punda. Í stefnunni segir að þessi afurð hafi verið svo ótrúlega flókin að hún hafi verið óskiljanleg öllum nema sérfræðingum í flóknum afleiðuviðskiptum. Hann sakar svissneska bankann um afvegaleiðandi kynningu, brot á reglugerðum og vanrækslu. Viðskiptin fóru fram á árinu 2007.
Í stefnunni gefur Desmond nettóeignir sínar upp og telur þær nema um 200 milljónum punda fyrir utan íbúðarhúsnæði, eignir í lífeyrissjóðum og verðmæti fyrirtækja. Credit Suisse gerir kröfur á hann um greiðslu 20 milljóna punda en sú upphæð hækkar stöðugt.
Desmond fékk í upphafi frá bankanum spurningablað, sem átti að leiða í ljós, hvort þessi viðskipti hentuðu honum. Hann heldur því fram, að fara hefði átt rækilega yfir svör hans áður en viðskiptin komu til framkvæmda. Í stefnunni segir, að í viðskiptunum hafi verið falin óeðlilega mikil áhætta fyrir Desmond í ljósi uppgefinnar lausafjárstöðu og nettóeigna og óviðeigandi hátt hlutfall skuldsetningar.
Desmond gerir kröfur um bætur, sem jafngildi kostnaði við að ljúka viðskiptunum og krefst þess að hinn upphaflegi samningur verði dæmdur ógildur.
Frá þessu segir Financial Times, sem segir að stefna Desmond sé ein af mörgum málum sem bankar í Bandaríkjunum og Evrópu standi frammi fyrir vegna ásakana um að hafa kynnt með röngum hætti viðskipti, sem hafi svo leitt til tapa eftir að fjármálakreppan skall á.
Fyrirtæki og sveitarstjórnir í nokkrum Evrópulöndum hafi hafið mál gegn bönkum vegna skiptasamninga og afleiðuviðskipta, sem hafi átt að vera vörn gegn vaxtahækkunum.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Þau Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðarráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.
Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni
Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknarflokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.