Financial Times segir að búast megi við miklum breytingum á stjórn Standard Chartered bankans, sem fyrir nokkrum dögum féllst á að greiða 340 milljónir dollara í sekt til eftirlitsaðila í New York-ríki og Connecticut vegna brota á lögum og reglum um bankaviðskipti við Íran. Gert er ráð fyrir verulegri breytingu í þeim hluta stjórnar bankans, sem kemur utan frá.
Á árinu 2003 var birt í Bretlandi skýrsla, sem stjórnvöld stóðu að um stjórnarmenn, sem ekki gegni jafnframt störfum fyrir viðkomandi fyrirtæki. Þar var talið að stjórnarseta í lengur en 10 ár vekti upp spurningar um sjálfstæði stjórnarmanns. Einn stjórnarmanna í bankanum hefur setið þar í meira en 11 ár. Fimm þeirra voru skipaðir milli 2003 og 2005.
Þá liggur stjórnarformaður bankans, Sir John Peace undir gagnrýni vegna starfa á öðrum vettvangi. Hann situr í stjórnum tveggja annarra fyrirtækja, sem skráð eru á markaði í Bretlandi og það er talið hafa valdið því að hann hafi ekki einbeitt sér að bankanum sem skyldi.
Gagnrýnin kemur fyrst og fremst frá stórum hluthöfum, sem hafa orðið að þola mikil töp vegna rannsókna á starfsemi bankans í Bandaríkjunum,
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Þau Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðarráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.
Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni
Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknarflokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.