Föstudagurinn 5. mars 2021

SE: Fjárstreymi frá Rússlandi styrkir evruna og ýtir undir verðhjöðnun


Styrmir Gunnarsson
9. maí 2014 klukkan 09:43

Mario Draghi, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu hefur í fyrsta sinn gefið til kynna að SE muni grípa til aðgerða í náinni framtíð til þess að vinna gegn lítilli verðbólgu, sem í sumum evruríkjum hefur leitt til verðhjöðnunar. Hann sagði í gær að bankinn hefði ekki sætt sig við hið lága verðbólgustig sem er nú 0,7% en viðmið bankans er um 2%.

Seðlabanki Evrópu ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,25%. En Draghi sagði að í júní mundu nýjar spár og tölur liggja fyrir og að bankaráð SE væri ósátt við þróun verðbólgunnar og mundi ekki sætta sig við of lága verðbólgu í of langan tíma. Hann gaf jafnframt til kynna að bankinn mundi grípa til aðgerða í næstu umferð.

Í þessum efnum er bersýnilega margs að gæta. Mario Draghi upplýsti að mikið fjárstreymi frá Rússlandi inn á evrusvæðið (og reyndar frá fleiri löndum) hefði haft þau áhrif að styrkja evruna og þar með ýta undir verðhjöðnun.

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Rússland: Ríkisjárnbrautar­fyrirtækið „risastórt viðskiptatækifæri“

Reuters-fréttastofan heldur áfram að birta fréttir og greinar um spillingu í kringum yfir­stjórn Rússlands. Hér á Viðskiptavakt EV hefur verið sagt frá stórgróða vina Pútíns vegna sölu á tækjabúnaði til sjúkrahúsa í Rússlandi.

Svíþjóð: Upptaka evru ekki á dagskrá í fyrirsjáanlegri framtíð

Fredrik Reinfeldt, forsætis­ráðherra Svíþjóðar og Stefan Löfven, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð hafa báðir sagt að upptaka evru sé ekki á dagskrá í fyrirsjáanlegri framtíð í Svíþjóð. Þetta kom fram í rökræðum í sænska sjónvarpinu í gærkvöldi. Löfven kvaðst hafa greitt atkvæði með því að taka upp evru árið 2003 en þjóðin hefði sagt nei og málið væri ekkert nálægt því að komast á dagskrá á ný.

Reuters: Um „höll Pútíns“ við Svarta haf

Reuters-fréttastofan er þessa dagana að upplýsa hvernig kaupin gerast á eyrinni í Rússlandi Pútíns. Árið 2005 gaf Pútín, þá forseti eins og nú, fyrirmæli um að endurnýja tækjabúnað á heilbrigðis­stofnunum í Rússlandi. Fimm árum síðar komust stjórnvöld að því að verðið á tækjunum var tvisvar til þrisvar sinnum hærra en eðlilegt var.

Credit Suisse viðurkennir saknæmt atferli

Credit Suisse hefur viðurkennt saknæmt atferli í starfsemi sinni að því er fram kemur í New York Times í dag. Frá því var sagt hér á þessum vettvangi fyrir nokkrum dögum að til þess kynni að koma. Blaðið segir að með játningu Credit Suisse liggi ljóst fyrir að enginn stórbanki geti verið viss um að hann verði ekki sakaður um saknæmt atferli.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS